Hver er ég?

Ég er fyrirlesari um ótta, sjálfsefasemdir og sjálfsvirði.

Ég vinn með fólki sem vill hætta að halda aftur af sér og byrja að standa með sér, bæði í lífi og starfi.

Það sem ég kenni er ekki bara fræði.
Það er eitthvað sem ég þurfti sjálf að læra.

Sagan mín

Þegar ég var ellefu ára gömul lifði ég af snjóflóðið á Flateyri.

Sú reynsla breytti öllu.
Ekki bara þá nótt, heldur líka því sem kom á eftir.

Ég ólst upp með ótta, sjálfsefasemdir og tilfinningu fyrir því að vera ekki örugg í sjálfri mér.

Þegar ég fór að vinna í mér

Á fullorðinsárum áttaði ég mig á því að ég var enn að lifa í ákveðnu survival mode.

Þótt lífið liti vel út að utan, þá var ég stýrð af ótta og sjálfsefasemdum.

Þegar ég fór að vinna í mér fór ég að sjá mynstrin skýrar og hvernig ég hélt aftur af mér.

Það sem kom mér mest á óvart var að ég var ekki ein.

Fólk í kringum mig, fólk sem virtist öruggt og með allt á hreinu, tengdi við þetta.

Þá áttaði ég mig á því að þetta var ekki bara mín saga,
heldur eitthvað sem mjög margir ganga í gegnum.

Þetta varð upphafið að þeirri vinnu sem ég geri í dag.

Í dag

Í fyrirlestrum mínum tala ég út frá minni eigin reynslu og tengi hana við jákvæða sálfræði og hagnýt verkfæri sem fólk getur nýtt sér strax.

Ég tala um ótta, sjálfsefasemdir og hvernig við lærum að treysta okkur aftur.

Ég hjálpa fólki að hætta að halda aftur af sér - og byrja að standa með sér.

Þetta hefur bein áhrif á samskipti, traust og vellíðan - bæði í lífi, starfi og skólasamfélagi.

Menntun og reynsla

  • BA í sagnfræði og bókmenntafræði

  • MSc í verkefnastjórnun

  • Markþjálfanám (Evolvia 1 & 2)

  • Mastersdiplóma í jákvæðri sálfræði

Höfundur bókarinnar Nóttin sem öllu breytti: Snjóflóðið á Flateyri (2016)

Björgunaraðgerðir eftir snjóflóðið á Flateyri 1995 þar sem Sóley Eiríksdóttir lifði af og missti Svönu systur sína
A woman with long blonde hair, sunglasses, and a striped dress standing in a desert with sand dunes.